fimmtudagur, apríl 5

Lovísa farin heim :(


Jæja þá er aðal skvísan hún lovísa farin heim eftir alveg hreint frábæran tíma hérna hjá okkur :) Það er búið að vera rosalega gaman. Gerðum alveg hreint helling og skemmtum okkur alveg æðislega :) Ég er búin að setja inn fyrstu myndirnar :) set meira inn um helgina eða eftir að ég kem heim frá Róm :) JEYJEYE Róm á sunndaginn :)

Ástarhilsen
Henný

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég hélt að það væru bara 365 dagar í árinu.. en þu kemur heim eftir 700 og eitthvað daga.. hehe ;)
en æðisleg mynd af ykkur Lovísu og bara allar myndirnar ;)hefur greinilega verið FRÁBÆRT hjá ykkur :) hafið það gott
kveðja frá íslandi
Karen

Henný sagði...

Karen shurrup!!!!
Lurv from Roma

Nafnlaus sagði...

hæ þetta er Lovísa .
ÞÞÞÞÞÞÞÞÞÞÞúúúúúúsuuuuuuunnnndddddddd þakkir fyrir frábæran tíma í London, þá meina ég geðveikt frábæran, ótrúlegan, truflaðan, skemmtilegan tíma... ég er ennþá alveg í skýjunum. Það var svo gaman hjá okkur ,þið eruð svo frábær og þið voruð svo rosalega góð að fara með mig um alla London, ég sá nefnilega örugglega allt í London. Ég sá Gúrkuna, Big ben, London eye, bridge tower og fullt af öðrum stöðum sem ég hef ekki pláss til þess að nefna. Síðan má ekki gleyma því að við Henny fórum líka út að sjoppa og okkur gekk bara vel, enda er ég dóttir Ásu. og svo fórum við út að sigla og þá sáum við eiginlega allt. Ég vil bara þakka ykkur ógeðslega mikið fyrir að leyfa mér þetta allt.Ég elska ykkur ótrúlega mikið ,þið eruð æðisleg og Gaui líka.Við sjáums þegar þið komið heim til Íslands.bbbbbææææóóóó

Nafnlaus sagði...

HÆ elsku Henný

Mig langaði að segja þúsund þakkir fyrir að vera svona æðisleg við dóttur mína hún kom heim brosandi í hringi. Við erum búin að fá að heyra fullt af sögum og alltaf er hún brosandi. Ég veit ekki hvernig ég get sagt nægjanlega oft og mikið takk fyrir að vera svona frábær við dóttur mína, þið eruð frábær :) takk takk takk takk

hilsen Ása Karín

Nafnlaus sagði...

Góða skemmtun í Róm skvísa!
Kveðja úr rigningunni á Icelandi
JK