föstudagur, maí 25

Yeah I´m free...FREEFALLING :)


Afsaka bloggleysið hef verið að drukkna í vennu :)
en núna er ég BÚIN í bili en samt BÚIN múahahahahh gekk bara ágætlega á prófinu..voða asnalega erfitt próf en ég held að ég hafi undirbúið mig vel :)
Ég átti að gera swot analysis ritgerð leggja hana á minnið með öllum tilvitnunum og tölum!!! svo var önnur ritgerðarspurning og sama reglan gildir þar!! :) en ég held að ég hafi kýlt þetta próf í magan :) múahahah vona að ég nái :)

Jey svo koma ninna og katrín á morgun JEY það verður sko gaman :) dísess kræst hvað ég ætla að skemmta mér vel sko :) myndin að ofan er eimitt af okkur stöllum á góðri stundu eheheheh

Annað í fréttum er að Vigfús og Karen komu í heimsókn í síðustu viku algjörlega óvart...mín snappaði alveg af gleði þar sem ég var búin að vera frekar niðurdregin í tengslum við námið(útskýri það að neðan), reyna að sækja um vinnu og bara vottur af heimþrá því að allir voru að fara til akureyrar.
En þau mættu hérna galvösk og gáfu mér orku til að ljúka þessu af.

Já varðandi námið mitt þá er þetta alls ekki það sem ég hélt að það væri og hef verið svona frekar ósátt síðan ég byrjaði en hélt að fyrsta árið væri bara svona..það er að segja eingöngu fræðilegur lærdómur..en svo kynnti ég mér þetta betur og þetta nám er algjörlega fræðigrein...vinkonur mínar nokkrar eru í öðru námi sem heitir Music and Media management og ætla ég mér að flytja mig yfir í það:) sem er ekki án vankvæða en frekjan frá klakanum ætlar ekki að láta yfir sig ganga sko!!!!!

Og já :) ég fékk afmælisgjöf í dag ( á afmæli 15 júní by the way alveg nægur tími að kaupa gjafir ;) ) en mig er búið að langa í Holga myndavél eftir að Anita keypti sér þegar hún var hérna síðast (já ég er að herma ehhehe) og mig langaði svo að geta tekið myndir með henni þegar stelpurnar eru hérna :) og gaui er svo sætur að hann gaf mér hana í afmælisgjöf og ég fékk hana senda í dag :) JEY nú er ekkert að vanbúnaði en að hlaða kvikyndið fyrir helgina :)
ástarkveðjur :) og jey rúmur mánðuður í heimkomu :) jibbbbbbbiddddíddddú
Henný

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með Próflok essskannn hefur sko pottþétt rúllað þessu upp eins og þér einni er lagið.
Lætur sko þessa bjána í skólanum ekkert vaða yfir þig - skiptir bara um nám og hananú:)
Eins gott að hleðslan á myndavélinni verði búin áður en við Katrín mætum á svæðið og það styttist óðum - mætum galvaskar á svæðið á morgun.
Kveðja Ninna

Unknown sagði...

Jibbí jey til hamingju með að vera búin með prófin :) Ninna kom í gær að sækja kortin svo að þið getið ferðast um allan bæ og drukkið cocktaila heheh góða skemmtun og þið munið ... Einn fyrir mig :)

Nafnlaus sagði...

Gott að vita að þú sést ekki alveg búin að gleyma hvernig á að pikka á lyklaborð. Nú skil ég hvers vegna ég var akki að skilja þetta nám þitt. Það var óskiljanlegt :-) Vonandi gengur vel hjá þér að flytja þig í hitt námið sem ég skil ekki heldur ;-)

Það var gaman í Þórsnesi og við fengum rosalega gott veður (allvega miðað við að það er enn hávetur á Íslandi og spáin var búin að vera slæm). Góða skemmtun með dúddú og púddu eða hvað þær nú heita sem eru að koma til þín.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með próflokin..... :D Get rétt ímyndað mér hversu ánægð þú ert!!

Skemmtu þér svo vel í góðra vina hópi og taktu á því kona, you go girl!

Það væri bara yndislegt að fá að hitta ykkur eftir brúðkaupið. Svo er auðvita hægt að hittast eitthvað fyrir, það er að segja ef þið komið tímanlega ;)

Anywho þú átt frábæran karl og það hef ég alltaf haldið fram. Hafðu það gott með vinkonunum og eins og ég segi TAKA Á ÞVÍ!!

Kv frá klakanum

Nafnlaus sagði...

hey, holgasister ;-)

fullt af frétta af þér alveg... gott að það sé nóg að gera... og gleður mig að heyra að þú hafir tekið á í prófunum þó svo að þetta sé ekki akkúrat námið sem þú vilt... þú kemst í hitt... ekki spurning... borgar nógu assgoti mikið í skólagjöld!

en heyrðu... góðast stundir!

:-)

Nafnlaus sagði...

erm... ég meina ´góðar´ stundir... sko...

Nafnlaus sagði...

Hey til hamingju,gott ad þú lærðir allavega hvað þú vilt ekki læra.. he, he, NU "SKIL" EG "HOLGA" eg helt ad tetta væri vinkona þín....
Hlakka mikið til að fá ykkur til Nice. Eigum við kannski að skella okkur til Portofino á Italíu,það er víst frábært.
Bisous
ALMOST TENGDÓ '''''