Loksins þegar við ætluðum okkur að gera eitthvað af viti þá er brjál rigning og þrumuveður. síðustu helgi var svaka gott veður en við vorum svo þreytt eitthvað eftir erfiða viku að við gerðum ekkert merkilegt en núna höfðum við svaka plön. Ætluðum að fara í Camden og rölta niður að Thames of fleira eeen rigningin stoppar okkur í þetta sinn. Í staðinn kúrum við okkur bara undir sæng sem er ekki alveg hræðilegt ;)
Ég fór í klippingu á föstudaginn.. fór með mynd af Farah Fawcett og fékk eitthvað sem líkist því ALLS ekki. Ég var gráti næst þegar ég sat í stólnum, stoppaði hana nokkru sinnum til að segja að þetta væri ekki það sem ég vildi og reyndi að útskýra hvað ég vildi...fékk bara "YYEES" og skepnan hélt áfram að klippa. Endaði með toppinn skipt í miðju!! já TOPPINN skipt í miðju og hann var missíður og alltof stuttur á pörtum. Ég lagaði klippinguna aðeins þegar ég kom heim en hún er samt ekki alveg það sem ég vildi.
Aní hú í gær skelltum við okkur samt útí rigninguna og fórum út að borða :) höfðum það rosa næs :)
En Gaui er komin með svaka matjurtagarð í eldhúsgluggan. Basil, Chilli og bananatré hehehe Við verðum komin með stabílan sjálfsþurftar búskap hérna fyrr en varir...
Það þarf svo sterk bein til að vera ég!!!
sunnudagur, ágúst 19
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)






5 ummæli:
VÁÁÁÁÁ... hvað þu lítur vel út stelpa :D ekkert smá ... og þu lika gaui hehe ;)
kveðja frá íslandíó
Karen
já ég er sammála síðasta ræðumanni ekkert smá sæt og fín bæði tvö... hlakka svo til að hitta ykkur :)
love
mamma
Sæta ;)
JK
Henný mín, þetta er bara fínasta klippaklipp :-)
kv,
V
Rosalega skvísa og mikil gella.
Og þessi klipping og greiðsla fer þér ;)
knús Dogg
Skrifa ummæli