Loksins loksins loksins komið gott veður aftur!!!! :)
Fórum út að borða í kvöld með Örnu. Sátum úti og borðuðum kræsingar á Da paolo :) namm namm :) röltum svo um Soho og Covent Garden og settumst svo út á kaffi hús og spjölluðum fram eftir :) Alveg rosalega skemmtilegt kvöld í alla staði.
Annars er lítið að frétta :) ég á bara viku eftir í vinnunni :) þau voru svo miður sín að ég væri að hætta að mér var boðið að vinna hvernig sem ég vilid..hversu líitð eða mikið :) Ein aðal ástæðan fyrir því að ég var að hætta var að ég fékk alls ekki þann sveigjanleika sem mér var boðið í byrjun en núna má ég fara niður í klukkutíma á mánuði ef ég vil heheehhehe það er erfitt að vera vinsæll :)
En ég er vonandi að fara í starfsreynslu í september :) Vil ekki vera að tala of mikið um það fyrr en allt er komið á hreint...vil ekki jinksa :)
Erum frekar leið afþví það er verið að loka uppáhalds hlutanum okkar af Camden Markaðinum :( þannig á morgun ætlum við að fara uppeftir og spreða fyrst það er síðasti sjens!!! Frekar lummó að það verði að troða verslunarmiðstöðum allstaðar...og ef það er eitthvað sem Camden vantar ekki þá er það Dorothy Perkins búð!!!!????
Aníhú ég ætla að skríða í háttinn :)
Það þarf svo sterk bein til að vera ég!!!
föstudagur, ágúst 24
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)




3 ummæli:
Ohh.. takk sömuleiðis sætu!! Var algjört æði. Elska svona kvöld. En ég setti líka inn myndir! Hjólabarinn var aðeins of mikil snilld!
Enne ein prufa smá test, hvort mér takist þetta,
Henny mín er bara með smá test , kv steina amma
Skrifa ummæli