mánudagur, september 24

Söknuður



Í dag er ár síðan elsku afi minn dó. Ég er búin að vera frekar aum í mér undanfarið og voða kvíðin yfir ég veit ekki hverju og bara öll öfug einhvern veginn. Það er svo skrítið að sakna einhvers svona afþví það er ekki eins og ég hitti hina í fjölskyldunni minni oft, æi ég veit ekki hvernig mér lýður....sumum þykir öruglega frekar púkalegt að vera tala um þetta á netinu eitthvað...æi aní hú
hérna er eitt af uppáhalds lögunum hans afa og það hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér líka..
Hótel Jörð

Tilvera okkar er undarlegt ferðalag.
Við erum gestir og hótel okkar er jörðin.
Einir fara og aðrir koma í dag
því alltaf bætast nýir hópar í skörðin.

Og til eru ýmsir sem ferðalag þetta þrá,
en þó eru margir sem ferðalaginu kvíða.
Og sumum liggur reiðinnar ósköp á,
en aðrir setjast við hótelgluggann og bíða.

En það er margt um manninn á svona stað
og meðal gestanna' er sífelldur þys og læti.
Allt lendir í stöðugri keppni' um að koma sér
og krækja sér í nógu þægilegt sæti.

En þó eru margir sem láta sér lynda það
að lifa' úti' í horni óáreittir og spakir,
því það er svo misjafnt sem mennirnir leita að
og misjafn tilgangurinn sem fyrir þeim vakir.

En mörgum finnst hún dýr þessi hóteldvöl
þó deilt sé um hvort hótelið sjálft muni græða.
En við sem ferðumst eigum ei annars völ,
það er ekki um fleiri gististaði að ræða.

Að vísu eru flestir velkomnir þangað inn
og viðbúnaður er gestirnir koma' í bæinn.
Og margir í allsnægtum una þar fyrst um sinn,
en áhyggjan vex er menn nálgast burtferðardaginn.

Þá streymir sú hugsun um oss sem ískaldur foss
að allt verði loks upp í dvölina tekið frá oss,
er dauðinn, sá mikli rukkari, réttir oss
reikninginn yfir það sem skrifað var hjá oss.

Þá verður oss ljóst að framar ei frestur gefst
né færi á að ráðstafa nokkru betur.
Því alls sem lífið lánaði dauðinn krefst
í líku hlutfalli' og Metúsalem og Pétur.

Ég elska þig afi og sakna alveg svakalega

4 ummæli:

Karen sagði...

æhh..ég skil þig sko alveg .. og það er allt í lagi að minnast hans hér.. sendi til þin rosalegar knús kveðjur og eg hugsa til þín :) hafðu það gott sæta:)

Nafnlaus sagði...

hellú london búar... Við sitjum hérna heima hjá pabba (afabróður þínum) og vorum að lesa þessa fallegu bloggfærslu.... nei Henný Jóna það er sko alls ekki asnalegt að skrifa um látin ástvin... Hafðu það sem allra best. Hugsuðum öll mikið um frábæra afa þinn í dag... Knús frá Telmu, Júlíu og Bjarti

Nafnlaus sagði...

Elsku Henný mín, við söknuðum þín við matarborðið í kvöld. Þú mátt vera þess viss að hann afi þinn er stoltur af þér í London, enda hafði hann svo gaman af því að ferðast sjálfur.
kv,
V

Nafnlaus sagði...

Hæ,
Var að' sjá þetta frá þér fyrst núna, letinginn ég að trassa bloggsíðuna þína. Ótrúlega falleg kveðja til pabba, og greinilegt að ást þín/ykkar á honum er ósvikin. Söknum ykkar hér á Íslandi, hafið það gott, pabbi er með okkur öllum, alltaf.
kv. Stóri frændi