þriðjudagur, febrúar 5

To write a blog or not to write a blog

Loksins er maður byrjaður aftur í skólanum. Búin að fara í tvo tíma ; Economics for the service sector og Introduction to marketing. Þetta virðist ætla að vera frekar erfið önn en þá er bara að taka sig á og taka þetta með trompi :) Annars er voðalega lítið að frétta af okkur ég er byrjuð í ræktinni á fullu og Gaui er svo upptekinn að hann hefur varla tíma til að knúsa mann sko!! hhehehehe En hann gaf sér nú tíma til að koma mér á óvart og bauð mér út að borða síðustu helgi :) Myndirnar hér að neðan eru frá þeirri ferð :-) svo gaf hann mér morgunmat í rúmið á laugardaginn þannig að ég var pent dekruð um helgina :)
Við erum á fullu að plana New York ferðina og Lovísa er búin að gefa okkur fullt af góðum ráðum :-)
Svo er Hilmar bróðir hennar að koma til okkar eftir tvo mánuði þannig að þetta er allt að gerast :)

En ég er annars að spá í að hætta með þetta blogg...sýnist það fáir skoða þetta að ég geti alveg eins sent emaila......hvað finnst þeim sem eru að lesa þetta....mig langar bara að vita hvort það sé þess virði...þannig að ég bið þá sem eru að lesa hjá mér að kvitta fyrir sig...bara segja hó eða hey eða eitthvað..þarf ekki einu sinni að vera undir nafni. :-)




Fengum Sushi sem hluta af forréttinum heeh Needless to say þá borðaði Gaui minn helming líka eheh

Það var rosalega flott inná þessum stað sést kannski ekki alveg nógu vel á þessari mynd ehhe

Tröppurnar inná staðinn

Gaui er ekki drukkin, í vímu eða að sofna...hheheh svona er hann bara ræfillinn hehehehe

11 ummæli:

Nafnlaus sagði...

nei Please ekki hætta .... ég kíki á hverjum degi og les og skoða allt mörgum sinnum :)
please please .... mér finnst svo gaman að skoða þetta hjá þér
KV. JJH

Nafnlaus sagði...

PLIS EKKI HAETTA,EG BID ALLTAF SPENNT EFTIR NYJU BLOGGI..
BBG

Nafnlaus sagði...

Nei ekki hætta. Ég skoða bloggið hjá þér mjög oft þó að ég kvitti ekki fyrir.
kv Jóna Dögg

Nafnlaus sagði...

Þú hættir sko bara ekki neitt góða mín - lofa að kvitta í hvert skipti og það verður ansi oft :)
Kveðja Ninna

Nafnlaus sagði...

Hvaða hvaða ekki hætta kona!

Það er svo gaman að leita frétta af ykkur skötuhjúum. Reyni alltaf að vera duglega að kvitta þegar ég kem og leita frétta skal lofa að vera duglegri ;)

Kvitt kvitt
hafið það gott sæta fólk

kv Dögg

Nafnlaus sagði...

neineineinei, ekkert hætta neitt!
Knús Brynja

Nafnlaus sagði...

Hæ Henny mín. ég er stödd á Teigabyggðinni núna , gaman að lesa bloggið frá þér ekki hætta þessu dúllan mín,kv, amma.

Nafnlaus sagði...

hó og hey

a.

Nafnlaus sagði...

Hæ, Henný mín. Það er þægilegt að geta kíkt hingað inn endrum og eins til að lesa fréttir af ykkur. Þetta er einskonar fréttaþjónusta hjá þér að halda úti þessari síðu :-) Þú verður náttúrulega að ráða því sjálf hvort þú nennir að halda úti þessari síðu. En ef þú lokar henni, þá verðurðu bara að senda reglulega út fréttabréf í staðinn ;-)
kv,
Valdi

Nafnlaus sagði...

Kvitt!
Með von um áframhaldandi skrif :)

JK

Nafnlaus sagði...

HEY VIÐ SÖGÐUM EEEEEKKKKIII HÆTTA!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
SVO AÐ NÚ ER AÐ BLOGGA KÆRA DÓTTIR :)