Loksins er rúmið okkar komið :) Jey núna er þetta farið að vera almennilegt heimili, þegar maður þarf ekki að sofa í svefnsófa. Mér finnst ég samt ennþá vera bara í fríi, mjög undarlegt að búa hérna loksins eftir meira en tíu ára drauma :)
Fyrsti gesturinn okkar kom í gær :) Vigfús gisti hjá okkur í nótt og hélt svo beint til frakkland um hádegið. Þeir Natan koma svo til okkar á fimtudaginn ásamt Karen sem kemur frá Íslandi :) Ég held að fyrsti gesturinn hafi bara verið mjög sáttur við þjónustuna hérna á Hotel Warren Court :)
Undarfarna daga höfum við náð að sofa frekar langt fram á dag þrátt fyrir það að það er verið að gera við einver rör ofan í gangstéttinni. Heima hefði þetta tekið viku og allt búið og fínt en nei þeir virðast klúðra þessu í hvert skipti sem þeir gera eitthvað og þurfa alltaf að koma með múrbrjót og rífa það upp aftur. Þeir voru til dæmis að vinna alla helgina og byrja þá oftast klukkan 7:30 stundum er maður alveg komin á nippin við að rjúka út og sýna þeim hvernig íslendingar gera þetta en þá man ég að ég hef ekki hugmynd um hvernig íslendingar myndu gera þetta og myndi líklega bara lengja verkið hehehehe en ef einhver íslendingur þarna úti getur gert þetta á skikkanlegum tíma er frí gisting og bjór á Warren Court ;)
Hlakkar mikið til að byrja í skólanum. Veit samt voðalega lítið um við hverju ég á að búast.. en það gerir það bara mjög gaman, ég var alltaf frekar pirruð í fjölbraut þegar annirnar byrjuðu að ég vissi einhvernveginn að ég væri að fara að læra það sama og í fyrra ( ekki það að ég hafi alltaf fallið ;) )
En jæja best að fara í háttin Ásgeir þykist ætla að vekja okkur snemma á morgun og draga okkur út í kaffi ;) sjáum nú hvort það gengur upp ;) en ætla samt að fleygja mér í nýja rúmið
Ástarkveðja
Það þarf svo sterk bein til að vera ég!!!
mánudagur, september 18
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
keyptuð þið ykkur rúm? hélt þið hefðuð flutt með ykkur... eníhú... hvenær byrjar skólinn? er gaui kominn með vinnu? eruði búin að kíkja á prince of wales feathers? hvað eruði búin að fara oft á starbucks? en í regents park? búin að vingast við indverjann í hornsjoppunni sem er opin allan sólarhringinn? það er nauðsynlegt ef mann vantar bjór after hours ;-)
öhh, anita er búin að segja allt það sem ég ætlaði að segja og mikið meira til, þannig að þetta sem ég er að segja núna er eiginlega bara ekki neitt. Bara að láta vita að stóri frændi er að fylgjast með :-)
Vona og treysti að ykkur líði vel.
Skrifa ummæli