föstudagur, september 15

Bresk skriffinska buh humbug

Ég hef nú fengið breska skriffinsku beint í andlitið :) Nenni varla að tuða yfir því en ég skal gefa ykkur smá dæmi. Hérna í Bretlandi er til hlutur sem kallast Counsil Tax. Það er í lélegri þýðingu íbúaskattur, þetta er skattur sem greiðist til hverfastjórnarinnar og fer er reiknaður út eftir hvað fólk á heimilinu græðir. En sem námsmaður á ég ekki að greiða þetta. Ég fékk ítrekun á þennan skatt um daginn þannig að ég hringdi og þá fékk ég að vita að ég yrði að koma til þeirra með svo kallað Counsil Tax certificate og koma með það fyrir 19 september. Ég drössla mér uppí Islington þar sem skólinn minn er. Þar á skráningarskrifstofunni er stelpa sem segir mér að ég eigi að geta notað Admissions bréfið sem ég fékk sent heim frá skólanum. Ég fer svo daginn eftir í viðtal hjá Counsilinu þar sem ég þarf að bíða heil lengi þangað til ég fékk að tala við einhvern og fékk þá að vita að ég yrði að koma með þetta blað og það fyrir föstudaginn í næstu viku!!! god svo að þegar ég kem heim hringi ég í skólan og panta mér svona blað og konan í símanum segist vera búin að gera þetta og ég geti náð í þetta strax. Ég kem daginn eftir og villist þarna um gangana í skólanum sem er rosalega stór. Ég náði loksins á skrifstofuna og fær þar að vita að fyrst ég er fyrsta árs nemi get ég ekki fengið þetta blað fyrr en eftir enrolment sem er á laugardaginn eftir viku!!! :-0 Ég sagðist hafa talað við konu daginn áður og hún hafi sagt mér að hún væri búin að gera þetta tilbúið fyrir mig. Hann fer þá og talar við konuna og kemur til baka og hún segist ekki muna hvort hún hafi gert þetta þannig að ég verði að bíða fram að enrolment...jeddúdda mía
Ég veit sko ekki hvað bíður mín hehehhe
En svona er það þegar maður er í nýju landi :)

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Greinilega fjör hjér þér henný mín að eltast við skriffinskuna í uk :-)

kv, ÞJH

Nafnlaus sagði...

ó god hvað ég kannast við þetta henný mín, þetta er líka svona hérna í DK, maður gæti nú orðinn geðbilaður á þessu rugli. En allavega takk kærlega fyrir að skrifa á síðuna hans Alexanders. Bið að heilsa að sinni
kveðja Gúrí

Nafnlaus sagði...

jæja skvís þá er ég nýkominn af flugvellinum og búin að henda kallinum til ykkar í pössun þangað til ég kem:-) hehe.. en svo fer ég að koma og þá verður sko skemmt sér og verslað og allt og bara ja og ... MER HLAKKAR SVO TIL :D:D:D:D:D

Nafnlaus sagði...

ohh... óþolandi vesen... og ekki einsog það sé stutt á milli og fljótlegt að hlaupa og redda málunum... en þetta kemur fyrir rest!