sunnudagur, september 24

Hvíldu í friði

Nú eru tveir tímar sem elsku afi minn yfirgaf þennan heim.
Ég er ennþá að reyna að jafna mig, trúi þessu eiginlega ekki. Afi minn var svo sterkur að ég vonaði alltaf að hann myndi sigrast á þessu einhvernveginn. En svo var því miður ekki. Hann er farin, farin til Júllu ömmu.
Við förum heim á þriðjudaginn til að vera við jarðarförina. Þetta er tími sem ég hélt að myndi aldrei gerast. Að fjölskyldan mín myndi lenda í einhverju svona. Að mamma mín myndi sitja við sjúkrarúm bíðandi eftir að þessi harmleikur myndi verða að veruleika.
Ég vil bara biðja alla sem hugsa vel til mín að beina líka góðum hugsunum til ömmu minnar sem á rosalega erfitt núna en hefur verið svo sterk undan farið.
Jæja best að fara að sofa mikið að gera á morgun
Ást og friður

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæhæ! Ég samhryggist innilega og hugsa til ykkar í þessum erfiðleikum.
Kveðja Ninna

Berta in Nice sagði...

Elsku Henny min eg votta þér Gaua og fjölskyldu þinni sammúð mína.Augu min eru full að tárum eftir að lesa bloggið þitt.Ég mun kveikja á kerti til heiðurs afa þínum.Ég vona að afi þinn muni hitta mömmu mina í æðri heimum þar sem fjölskylur okkar tengjast og saman muni þau geta hlegið(mamma hafði fallegasta bros i heimi)af axarsköftum okkar hérna á jörðinni
Kv. Berta í Nice

Nafnlaus sagði...

Elsku Henný mín... ég samhryggist þér og fjölskyldu þinni innilega... það er líklega ekkert sem ég get sagt til að hugga þig á þessari stundu... nema að ég er hérna fyrir þig og Gaua í blíðu og stríðu...

ástarkveðja

Nafnlaus sagði...

Elsku Henny Jóna okkar !
Innilegar samúðarkveðjur til þín og þinna.
Ég bíð eftir að geta faðmað þig og kysst, þegar við hittumst næst.
Megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar.
Bestu kveðjur Inga Kr. og fjölsk.

Nafnlaus sagði...

elsku henny mín og gaui ég samhryggist ykkur sárlega og við anna munum biðja fyrir ykkur og fjölskyldunni þinni elsku henny mín að guð gefi ykkur öllum stirk til að takast á við þessa miklu sorg ástarkveðja ranný og anna