föstudagur, september 8

Í karftöflugarðinum heima

Sit hérna í stofunni minni ný búin að fara í bað og nýt þess að horfa yfir íbúðina og út um gluggan...okkur tóskt að stelast inná þráðlaust net hjá fyrirtæki sem er hérna fyrir neðan okkur og er ekki með læst hjá sér ;)
Núna eru húsgögnin komin og við erum búin að setja næstum allt á sinn stað...bara fín pússun eftir
Það var nú samt meira en lítið vesen að koma þessu inn í morgun skal ég segja ykkur. Gauirnn á sendiferðabílnum átti að hringja í mig klukkutíma áður en hann kæmi og átti þetta væntanlega ekki að gerast fyrr en eftir hádegi en viti menn klukkann 7:20 bjallar félaginn og segist vera að keyra hérna fyrir utan og hann vissi ekkert hvernig hann ætti að koma að húsinu. Málið er að það er verið að gera við gangstéttina hérna fyrir utan og þeir eru búin að taka undir sig alla stéttina... við rjúkum niður og komumst af því að klukkan sjö hafði karldruslan hringt í húsvörðinn og vakið hann og húsvörðurinn orðið frekar reiður..við náttúrulega alveg miður okkar yfir þessu vegna þess að húsvörðurinn er rosalega fínn náungi og það síðasta sem við viljum gera er að valda honum einhverju veseni...allaveganna þá þurftum við að losa bílinn útá götu nokkur hundruð metrum frá hurðinni og bera allt inn í anderi og þaðan upp..þetta var nú meira vesenið en hafðist á endanum.. Ég rakst síðan á húsvörðinn sem sagði mér að það hafi verið hringt í morgun og beðið um Dr. Henry..hehehehe og hann hafi verið frekar pirraður þar sem hann kannaðist engan vegin við neinn Dr. Henry en flutninga gauirnn hafi ekki gefist upp hehehehehe þannig að allt endaði vel að lokum :) Bjóðum honum bara upp á pint í næstu viku ;)
Við erum ekkert smá montin með íbúðina okkar og hlakkar til að sýna ykkur öllum :)
Nú er vonandi að líkaminn fari að slappa af svo stress exemið og lætin öll fari að minka ;)
Afslöppunar kveðju úr Warren Court

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hljómar allt mjög vel... en hvernig er það... þið eruð sumsé orðin nettengd og eigið digital myndavél og svo einfalt að hlaða myndum inná þetta blogg ... hvar eru myndirnar???... get vart beðið eftir að sjá hjá ykkur :-)

Nafnlaus sagði...

Gott hjá ykkur, eruð að koma ykkur vel fyrir og þá verður nú allt bara æðislegt og þá má fólkið fara að koma... gaman að fygljast með ykkur, haldið okkur upplýstum og já takk fleiri myndir...Kv. Erluásgengið