þriðjudagur, apríl 1

5 dagur

Vöknuðum frekar snemma og ætluðum að fara í NBC túrinn. Fórum í lestina voða hress. Sátum hlið við hlið einu meginn í vagninum og voða smart Ítalst par á móti okkur. Á einni stöðinni kemur inn haltrandi stelpa sem er augljóslega eitthvað þroskaheft. Hún gengur beint að ítölsku konunni og biður hana að færa sig og sýnir henni einhvern passa eða skilríki. Þau verða náttúrulega við þessari beiðni og renna sér til hliðar á plastbekknum og stelpan sest niður...ekki alveg í sætið heldur alveg uppvið þessa ítölsku og setur töskuna sína í fangið á henni...hehe þau færa sig aðeins neðar á bekknum og stelpan biðst afsökunar..ég og önnur stelpa í vagninum erum byrjaðar að flissa af þessu þá tekur vinkonan á uppá því að loka augunum eins og hún sé að sofna...og leggst á öxlina á þeirri ítölsku. Ég fer að hlæja og bendi gaua á þetta. Ítalska konan ríkur upp og segir manninum sínum hvað standa upp líka.. þau fara hinu megin við dyrnar þar sem eru svona minni bekki fyrir einn og hálfan. Ítalska konan sest þar en maðurinn hennar stendur við dyrnar. Allt í einu tekur vinkonan sem varð eftir á sig rögg, stendur upp og sest beint við hliðina á þeirri ítölsku og aftur beint á öxilna með lokuð augun. Stelpan við hliðina á mér er núna að pissa í sig úr hlátri og ég og gaui getum ekki annað en hlegið upphátt. Ítalska ekki sátt stendur upp og stendur hjá manninum sínum. Maðurinn sér að það er alveg tómur bekkur þar sem þau sátu áður og sest niður og reynir að fá konunua sína til að sitja með sér en hún þver neitar..við gaui og eiginmaðurinn erum núna hlægjandi eins og hýenur. nokkrum stöðvum seinna fer ítalska parið út og hvað haldiði vinkonan í horninu rýkur og og stekkur út úr lestinni ég byrja að hlægja og græt næstum úr hlátri en sem betur fer fyrir þau ítölsku fór hún í aðra átt á pallinum heldur en þau hehehehehe alveg æðislegt dæmi um það sem maður getur lent í í neðarjarðarlestum hehehehehe

Aníhú
Þegar við komum á Rockafeller Center tékkuðum við á NBC túrnum en hann var fullbókaður fyrir þann daginn, þannig að ég ákvað bara að sleppa honum (ætla hvort eð er að stjórna kompaníinu einhvern daginn þá fæ ég þennan túr frítt hvenær sem ég vil múahahah) Röltum yfir í Nintendo búðina sem við bjuggumst við að yrði mergjað þar sem við eigum tvær nintendo tölvur (wii og ds light) en þetta var frekar sorglegt....ekkert nema túristar og voða lítið úrval. Röltuðum að austur hluta eyjunar og skoðuðum ýmislegt á leiðinni. Fórum á kaffi hús og ákváðum að skoða eitthvað af þeim kúl búðum sem við höfðum fundið á netinu..og þá ekki fatabúðir heldur meira svona fyndnar og öðruvísi og gaui vildi endilega finna nokkrar búðir sem seldu píludót. Löbbuðum niður í bæ og fórum í nokkrar íþróttabúðir en engin var með píludót. Fórum í rosa skemmtilega búð og keyptum okkur teppi á sófann og lítinn dúk ehhe :)
Fórum svo í síðustu búiðina á listanum hans Gaua en hún var lokuð og ég varð að LOFA að hann fengi að fara þangað strax daginn eftir. Röltum svo og fengum okkur að borða á Outback sem mér skilst að sé soldið klisju steikhús en við vorum mjög ánægð.


Gaui með Atlas fyrir framan Rockafeller

Ég við Rockafeller Plaza

Þetta eru svo kúl byggingar

Við skautasvellið

Ekki alveg pakkað á svellinu

Tilraun til jólakorta myndar

Snilldar myndataka hjá Guðjóni

Empire state í myrkri

Engin ummæli: