þriðjudagur, apríl 1

Dagur 4 Páskasunnudagur

Vöknuðum snemma til þess að kaupa millistykki fyrir myndavélina. Lentum í því að vélin byrjaði að láta vita af betterísleysi í Empire State. Það var ALLT lokað. Í fyrsta lagi var náttúrulega sunnudagur og í örðu lagi páskasunnudagur. Það var ekki svona mikið lokað þegar við vorum í Róm á páskasunnudag í fyrra...Löbbuðum niður Lexington Avenue HEILLENGI þangað til við fundum opið Duane Reade. Þegar við komum inn var okkur bent á millistykki sem var til í öllum hinum búðunum en er bara fyrir kana sem eru á leiðinni til evrópu en ekki evrópu skríl sem vill athafna sig í Ameríkunni. Eeeen konan var svo brilliant að hún heimtaði að Gaui teigði sig innar í hilluna sem var efst. Við bara nei nei þetta er allt sama vitleysan og hún bara nei teigðu þig..og viti menn haldiði að þar hafi ekki laumast eitt all over international millistykki :) ekkert smá sátt og getum notað þetta hver sem við förum í heiminum :) Flýttum okkar að rölta uppá á hótel og stinga myndavélinni í samband. Það var rosalega gaman að labba upp götuna og sjá alla uppstríluðu New Yorkerana á leið í páska brunch og kirkju. Skelltum okkur svo á kaffihús í nágrenninu til að fá okkur morgunmat..Allt í einu heyri ég eitthvað sem líkist íslensku...það gat nú samt ekki verið og hélt bara áfram að borða en svo heyrði ég pottþétt orðið ávextir og leit við var þar ekki stór íslensk fjölskylda hehehe við spjölluðum að eins við þau..meiri hlutinn býr í bandaríkjunum Maryland skildist okkur og restin í new york fylki eða á klakanum heheeh frekar mikil tilviljun ehhehe
Ákváðum að skella okkur í smá siglingu og héldum niður á höfn. Þar tókum við Staten Island Ferry til Staten Island og til baka. Með þeim báti fær maður frí siglingu með frábæru útsýni yfir Manhattan og frelsistyttuna. Þegar við komum til Staten Island urðu allir að fara úr bátnum og koma aftur inn sem vildu fara til baka..ég ákvað að troða mér soldið framalega til að ná góðu útsýni á bakaleiðinni. þegar ég er komin á ágætis stað stend ég bara kjurr og er bara að skoða í kringum mig og þá bakkar einhver beint framan á mig..snýr sér ekki við þessi líka evil gamla norn maður..greinilega innflytjandi talaði ekki það góða ensku en snappar á mig..ég segi bara afsakið og horfi í kringum mig , hún spyr hvað ég sé að hugsa að labba bara á hana og eitthvað ég biðst bara afsökunar og segit vera að leita af vinum mínum (takið eftir orðinu vinum..vildi ekki láta kellingar nornina vita að ég væri næstum on my own þarna þar sem gaui trúir ekki á að troðast) ég lýt á gelluna með undrunarsvip og heyri svo að það er einhver að reyna að tala við mig á bak við kellu..þar er eldri maður svipað illa farin og kellingin ég bara sjitt nenni ég þessu sko en hann tekur í hendina á gömlu og reynir að taka hana í burtu og segir svo við mig farðu bara...ég segi aftur afsakið við gömlu en hún heldur áfram í ruglim, gamli gaurinn segir aftur farðu bara..ég tek á mig rykk og treð mér framar ehhehe en ég fékk gott pláss í bátnum!!!!
Eftir ferjuferðina röltuðum við á South Street Seaport þar sem ég lét spá fyrir mér. Svo röltuðum við upp Wall Street og svo að World Trade Centre og þaðan yfir í Village. Leituðum í helling af íþróttabúðum að píludóti fyrir Gaua. Enduðum í dýrabúð(surprise surprise) heeh svo skelltum við okkur á Goodburger (já eins og myndin en meira svona american stæl staður) Svo bara snemma heim í háttin :)

Útsýni yfir Manhattan úr ferjunni

Frelsisstyttan

Með flottu útsýni

úbbs gleymdi að horfa í myndavélina

Staten Island Ferry

Með flottu húfuna

Gaui flottur með útsýnið

Alltaf verið að reyna að finna góða jólakortamynd

Að sigla inn í höfnina

Við bryggjuna

Á röltinu með fram south street

Nokkrar gamlar tryllur.....

Verið að spá fyrir mér...ég er víst gáfuð og æðisleg og allir elska mig...hef sönnun hann sagði það hann zoltar!!!!

Gaui við Ground Zero

Nema hvað ;)

Svona voru flest bílastæði í borginni

Guðjón með Empire State í bakgrunninn

Rosa kúl hótel

Engin ummæli: