sunnudagur, september 3

Nú fer að koma að því....


Nú eru bara sirka 20 tímar í brottför..dótið er komið í gáminn og er kominn langleiðina til immingam. Þegar við fórum að borga fyrir flutninginn á föstudaginn var eins og einhver hefði sprengt blöðru og blaðran var ég...ég er búin að vera geyspandi alla helgina og er loksins farin að gera sofið á nóttunni án þess að lenda í rifrildum við mann og annan
Kveðju dinnerinn sem við héldum fyrir báðar fjölskyldurnar á sunnudaginn fyrir viku var algjört æði..það var að sjálfsögðu dönsuð bomba en það vantaði arnar en við vitum að hann er að kenna offeitum könum að dansa bomba þannig að þetta er allt í lagi ;)
Í gær fórum við svo á Ljósanótt og enn og aftur kom sprungna blaðran fram afþví ég var alltof þreytt til hanga niðri í bæ í keflavík frá hálf níu til tíu. Diljá var líka orðið mjög kalt þannig að við tvær stungum bara af og skildum strákana eftir. ;)
Fyrr um kvöldið hafði verið svona smá fjölskyldu mót hjá Gaua þar sem pabbi hans eldaði sína klassísku fiskisúpu sem er alveg MERGJUÐ ég myndi ferðast langt til að fá skál af henni :)
Og svo á hann Hilmar minn afmæli í dag eða Hilli bill eins og ég kýs að kalla hann :)
En jæja ætli það sé ekki nóg komið í bili...Við hittumst næsti í LONDON BABY

P.S hér að ofan er mynd að Hilmari með uppáhalds skemmtikrafinum Pernille

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

góða ferð elsku dúllurnar mínar og bara gangi ykkur rosalega vel. við eigum ettir að sakna ykkar svo mikið:) en allavega elska ykkur HUGES mikið krútlin mín:)
kv.Karen Lilja

Nafnlaus sagði...

Góða ferð og gangi þér rosa vel í stóra útlandinu.

Jóna Katrín